Þú ert kominn inná HAMSTURINN

*KATA*

12.02.2007 15:00:31 / kata

Allt tekur sinn tíma, sumt kanski lengri tíma en annað

Já síðustu dagar eru búinir að vera svona skrítnir, en það er allt að koma í sama lag aftur þannig séð. Margt hefur að sjálfsögðu breyst. Ég er samt mjög ánægð með að geta skrifað að allt mun vera eins og áður ekki öfugt.

Miðvikudagurinn var mjög svo erfiður. Hann var samt erfiðastur fyrir Gudduna mína, þó svo að hún muni nú lítið eftir honum. Það sem stendur held ég uppúr hjá henni er morfínið sem hún fékk beint í æð á slysstaðnum. Hún man vel eftir því. Allt hitt er í móðu og allur fimmtudagurinn líka, þetta virðist samt allt vera að rifjast upp núna. Hún virtist vera okei þegar maður var að tala við hana en svo daginn eftir mundi hún kanski ekki alveg eftir því, það er reyndar útaf lyfjunum.

Á fimmtudaginn fór ég með stelpunum Ibbu og Möggu og hittum hana, við vorum að hitta hana fyrst þá eftir slysið, það var bæði erfitt en samt sem áður hefur mér örugglega aldrei verið svona létt. Ég var búin að tala við mömmu hennar og pabba meira að segja hana sjálfa en ég vildi samt sem áður sjá hana til að vera viss um að hún væri á lífi.

Hún fór úr mjaðmalið, brotnaði á upphandlegnum og brákaðist á hinni hendinni, fékk skurð á hökkuna og á hnéð sem þurfti að sauma og síðan nokkur sár og rispur út um allt útaf glerbrotunum. Á fimmtudaginn þá lá hún bara í rúminu að degja úr verkjum, vanlíðan og öllu því ssem fylgjir svona slysum. Hún var alveg ósjálfbjarga. Þegar ég fór heim var ég ekki viss um hvað ég átti að halda, mamma hennar og pabbi voru að sjálfsögðu búin að segja mér allt, að hún er öll alltílagi þannig séð, engin líffæri skemmd eða neit þannig. Allt sem myndi lagast með smá tíma. Ég samt var svo svartsýn maður bæði vorkendi henni og sá ekkert gott. Mér fannst æj ég veit ekki hvað ég á að segja.

Daginn eftir hugsaði maður kanski betur, Ég fór til hennar með Kiddu og þá svona var hún meira lík sjálfri sér, þó svo að hún væri að degja úr verkjum og allt það. Þá fór ég svona að sjá jákvætt að það yrði allt í lag. Hún er líka búin að sýna það hvað hún er dugleg.

Ég að einhverjum ástæðum treysti oftast bara sjálfri mér, mér er alveg sama hvað hver segjir ég þarf að sjá það sjálf. Ég hélt að það væri langt í það að Guddan færi framm úr rúminu en hún er búin að setjast nokkrum sinnum fram á rúmstokkinn og fara 2 í hjólastólinn og 1 sinni í bað. Ég er svo stolt að henni, hún er svo dugleg.:):):D:D:!::!:

Ég gisti síðan hjá henni á laugardagsnóttina. Ég vildi að sjálfsögðu vera hjá henni, hlakkaði bara til. Ég var búin að plana að fara ekkert að sofa vaka bara yfir henni, tók með mér skólatöskuna og allt. Við spjölluðum mikið saman, það var bara alveg eins og vanarlega fyrir utan það að við vorum á sjúkrahúsi og hún stór slösuð. Mér leið ekkert smá vel eftir þessa nótt en aftur á móti vaknaði Guddan einhvað vitlaust, hún var já ekki kanski alveg jafn jákvæð og hún hafði verið daginn áður. Hún lét bara hjúkkurnar og fólk heyra það en samt var hún alltaf jafn góð við mig, en ég vil frekar að hún láti neikvæðnina og reiðina bitna á mér heldur en konunum sem vilja bara hjálpa. Mamma hennar og pabbi komu síðan og mamma hennar sagði henni það og við svona reyndum að peppana upp, ég reyndar þurfti síðan að fara en síðan seinna þegar ég talaði við hana þá var hún allt önnur búin að fara í hjólastólinn einu sinni og svona. Hún reyndar hefur alveg leifi til að vera pirruð og reið og neikvæð eftir svona stóran dag daginn áður. Hún var líka bar rosalega þreitt eftir daginn.

Ég og amma kíktum á hana á aðan og þá var hún að koma úr baði og var bara helvíti hress er farin að hreyfa sig mikið meira og svona. Hún er bara búin að vera ekkert smá dugleg. En samt sem áður er mikil vinna frammundan og hún á eftir að þurfa mikla hjálp ekki bara við það að jafna sig á meiðslunum heldur líka andlega. Til þess erum við vinirnir og fjölskyldan. Með þessu áframhaldi verður hún fljót að ná sér;)

En já pínu væmið blogg kanski en samt. Skólinn heldur að sjálfsögðu áframm og lífið þannig að maður þarf að pæla í skólanum sínum. ætla reyndar ekki í skólan á morgun en miðvikudaginn og hina dagana. Síðan á miðvikudaginn þarf ég að fara til læknis og einhvað vesen.

En já nenni nú ekki að skrifa meira skrifa seinna einhvað.

 

Dagrún Fanný skrifaði
Ég segi bara að hún sé heppin að eiga svona góða vinkonu eins og þig. p.s. voru myndirnar komnar?
Kata skrifaði
Hummm sko þetta er allt að koma..... Tala bara við óla til að láta setja þær á disk fyrir mig
Dagrún Fanný skrifaði
ertu komin með þær? tíhí

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Strákarnir!
Bílar
Myndasöfn